Velkomin
Velkomin
Velkomin á vefsíðu geislafræðideildar fyrir myndgreiningarrannsóknir og rannsóknarinngrip (interventional radiology) háskólasjúkrahúss Ludwig-Maximilian-háskólans í höfuðborg Bæjaralands, Munich! Hér finnur þú gnægð af upplýsingum fyrir sjúklinga og fagfólk í læknavísindum sem og öðrum vísindagreinum um framboð okkar af læknisþjónustu, vísindum og nýstárlegum kennsluaðferðum. Við bjóðum upp á hágæða myndgreiningu með nýjustu tækni þar sem við nýtum aðferðir úr öðrum tengdum læknavísindum, til að mynda rannsóknum á ferli vefjaskemmda sem hluta af meinafræði, læknisfræðilegum rannsóknarstofum, og örverufræði. Við leggjum sérstaka áherslu á fjölbreytilegt framboð rannsóknarinngripa til meðferðar og sýnatöku. Rannsóknarinngripin eru framkvæmd með þrívíddarmiðun þar sem aðgerð eða sýnatöku er stýrt með tölvusneiðmyndun eða segulómun með lágmarks inngrip í líkama og þar með velferð sjúklingsins. Með þess konar lágmarks rannsóknarinngripum er hægt að meðhöndla afbrigði flestra og jafnvel sjaldgæfustu sjúkdóma. Við hlökkum til að heyra í þér! Endilega hafðu samband við okkur ef þú hefur einhverjar spurningar um framboð meðferða, rannsókna eða innhald vefsíðunnar:
Rannsóknarstefna okkar
Rannsóknarstefna geislafræðideildarinnar er hnitmiðuð og framsækin. Við leggjum sérstaklega áherslu á þróun alhliðarannsókna og -greiningu með hjálp allra tiltækra læknavísinda sem og annarra vísindagreina. Þar með getum við boðið upp á fullkomnustu tiltæku meðferðir fyrir sjúklinga með notkun tölvustuddra, sjálflærandi reiknirita. Grunnstuðlar rannsóknarstefnu okkar eru afnot af okkar eigin rannsóknarstofu fyrir frumurannsóknir og smádýr, þrívíddarmiðað rannsóknarinngrip með lágmarks áverkum, myndgreiningar og -sameindarrannsóknir sem og þverfræðileg klínísk gagnavísindi. Markmið okkar er að tengja saman stuðlana og þar með bjóða upp á fullkomna sérsmíðaða læknismeðferð byggða á styrkum stoðum hárnákvæmrar sjúkdómsgreiningar. Rannsóknir okkar fara fram á orði og á borði í samvinnu við samstarfsaðila frá mörgum sviðum sem skilar sér í hraðri þróun læknismeðferða nær umsvifalaust eftir nýjustu niðurstöðum úr klínískum rannsóknunum. Flestar vísindarannsóknir eru fjármagnaðar af opinberum aðilum eins og Samtök Þýskra Vísindarannsókna (á þýsku: Deutsche Forschungsgemeinschaft), ríkisreknum aðilum sem og fjármögnun óháðra klínískra rannsókna af einkareknum aðilum.
Krabbameinsfræði
Myndgreining krabbameins er í miðdepli krabbameinsgreiningar og greiningar krabbameinsæxla.
Höfuð og háls
Myndgreining höfuðs og háls er notuð við greiningu, ákvörðun réttrar sjúkdómameðferðar og mat sjúkdómsþróunar. Hér er bæði notast við hefðbundnar greiningaraðferðir sem og starfrænar myndgreiningaaðferðir og myndgreiningu á hreyfingu, t.d. til að rannsaka erfiðleika við að kyngja.
Hjarta og brjóstkassi
Myndgreining leikur stóran hlut í greiningu og framvindu margra hjarta- og lungnasjúkdóma.
Kviður og mjaðmagrind
Margir sjúkdómar á líffærum í kviði og mjaðmagrind þurfa sérhæfða greiningu og meðferð byggða á langri reynslu.
Bróstaskoðun
Brjóstaskoðun er hægt að gera að ýmsu móti sem fer eftir aldri og ástandi sjúklingsins.
Vöðva-, beinagrindar- og bráðalækningar
Hárrétt myndgreining á líkamskerfi sem byggist á flóknu samspili vöðva og beinagrinda er forsenda réttrar meðferðar.
Barnageislafræðingur
Barnalækningar er ávallt stór áskorun. Hárrétt greining getur skipt sköpum um greiningu og meðhöndlun sjúkdóma sem og eðlilega þróun barnsins. Hér er ekki nóg að vera sérfræðingur heldur þarf sérstakan hæfileika við meðferð barna í stressandi aðstæðum.
Ómskoðunarmiðstöð
Alhliða ómskoðunarmiðstöðin okkar býður upp á allar tiltækar ómskoðunaraðferðir.
Eigin göngu- og legudeild fyrir rannsóknarinngrip og þrívíddarmiðaða, hnitmiðaða sjúkdómameðferð að nafni microtherapy
Göngudeildin er miðpunktur rannsóknarinngripa og eftirmeðferða á göngu- sem og legudeild. Hér getur þú pantað viðtalstíma og ráðgjöf hjá sérfræðingum í rannsóknarinngripum og eftirmeðferð eftir slík inngrip. Sjúkdómar sem meðhöndla má með rannsóknarinngripum eru óteljandi, allt frá smáveganlegum kvillum upp í krabbameinssjúkdóma, sjúkdóma æðakerfis, bæði meðfæddra sem og eftir slys, hryggjar, beina og ákveðnum líffærum í kviðholi kvenna.
Flókin sjúkdómatilfelli, sérstaklega í krabbameinslækningum, eru rædd á sameiginlegum fundum teilheyrandi deilda háskólasjúkrahússins þar sem mögulegar meðferðir eru ræddar og sérfræðingar úr mismunandi læknavísindum spurðir ráða. Við erum virkir þáttakendur á flestum slíkum sérfræðingafundum.